Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

Ég vil vera sjálfboðaliði

* Kennitala
(án bandstriks)


2000 sjálfboðaliðar starfa á vegum Rauða kross Íslands.

Það eru margir möguleikar fyrir þá sem vilja gerast sjálfboðaliðar Rauða krossins:

- Sjálfboðaliðar í neyðarvörnum sinna fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi.

- Skyndihjálparhópar sinna sjúkragæslu á ýmsum mannamótum.

- Heimsóknavinir styðja einstaklinga sem búa við einsemd og félagslega einangrun.

- Í Hjálparsíma Rauða krossins 1717 svara sjálfboðaliðar símtölum frá fólki sem þarf aðstoð.

- Vinanet Sjálfboðaliðar spjalla á netinu við ungt fólk sem er félagslega einangrað og hittist einu sinni í mánuði utan tölvuheimsins.

- Sjálfboðaliðar í fataverkefni selja notuð föt Rauða kross búðunum, prjóna og hekla eða vinna við að taka á móti og flokka föt í flokkunarmiðstöðvum félagsins.

- Í athvörfum Rauða krossins fyrir fólk með geðraskanir er margvíslegur stuðningur sem sjálfboðaliðar taka þátt í. Einnig er starfrækt næturathvarf fyrir heimilislausar konur á höfuðborgarsvæðinu, Konukot.

- Starf með innflytjendum felst meðal annars í  heimanámsaðstoð, heimsóknum til hælisleitenda og þátttöku í þjóðahátíðum.

- Löng hefð er fyrir starfi sjálfboðaliða á sjúkrahúsum LHS við rekstur sölubúða og bókasafnsþjónustu.

- Í starfi með ungu fólki er lögð áhersla á gagnkvæma aðlögun ungra innflytjenda og jafnaldra þeirra meðal annars með málörvun og samfélagsfræðslu.

- í Rauðakrosshúsinu er boðið upp á ýmis úrræði fyrir þá sem eiga erfitt vegna efnahagsþrenginga.

- Í vinadeildasamstarfi efla sjálfboðaliðar tengsl við sjálfboðaliða í öðrum löndum.

- Liðsauki eru sjálfboðaliðar sem bregðast við á neyðartímum en þurfa að öðru leyti ekki að vera virkir sjálfboðaliðar.

Meira um helstu verkefni hér.