Helstu sjálfboðaliðaverkefni
Hin fjölmörgu verkefni Rauða kross Íslands dreifast um landið allt, en hafa þarf í huga að mismunandi er eftir deildum hvaða verkefni eru starfrækt á hverjum stað.
Átaksverkefni eru af ýmsu tagi og má þar nefna landssöfnunina Göngum til góðs og kynningu á innanlandsstarfi.
Fataverkefni er tvíþætt. Annars vegar er það Fatasöfnun og hins vegar Föt sem framlag. Fatasöfnunin miðar að því að koma afgangsfatnaði í endurnýtingu. Fötum er safnað um allt land, þau flokkuð og seld eða nýtt í hjálparstarf. Hluti fatnaðarins fer í fataúthlutun hér á landi eða er seldur í verslunum Rauða krossins, en mikið magn er selt úr landi til endursölu víða um heim. Föt sem framlag eru hópar sjálfboðaliða sem hittast til að prjóna og sauma fatnað. Hluti afrakstursins er sendur á starfsvæði Rauða krossins í Afríku, en einnig eru fötin seld innanlands. Allur ágóði rennur í Hjálparsjóð Rauða krossins.
Félagsvinur - mentor er málið er verkefni sem byggir á nokkurs konar námssambandi milli tveggja einstaklinga sem báðir njóta góðs af. Annar er frá heimalandinu (mentor) og hinn af erlendum uppruna (mentee). Þannig eru tengdir saman einstaklingar af innlendum og erlendum uppruna sem geta skipst á upplýsingum og þekkingu á jafningjagrundvelli þar sem unnið er að því að beisla þann óvirkjaða mannauð sem felst í menntun, þekkingu og reynslu fólks af erlendum uppruna, bæði þeim og íslensku samfélagi til framdráttar.
Félagsleiðbeinandi er verkefni sem gjarnan hefur verið kallað ömmu og afa eða frænku og frænda verkefnið. Sjálfboðaliði tekur þar að sér barn af erlendum uppruna einu sinni í viku, aðstoðar við ýmis atriði í íslensku samfélagi, þar á meðal tungumálið, og styrkir um leið tengslanet barnsins.
Heimsóknaþjónusta Rauða krossins er í boði víða um land og er öll unnin í sjálfboðavinnu. Sjálfboðaliðar heimsækja gestgjafa sína að jafnaði einu sinni í viku og veita þeim aðstoð og félagsskap. Vinir og gestgjafar eru á öllum aldri og heimsóknaaðstæður margvíslegar. Á meðal gestgjafa eru dvalarheimili aldraðra, sambýli, einkaheimili og fangelsi. Hundavinir og ökuvinir eru einnig víða um land. Þjónustunni er ætlað að sporna við og rjúfa félagslega einangrun fólks á öllum aldri, en kannanir hafa sýnt að einsemd er alvarlegt vandamál í samfélaginu.
Hjálparsími Rauða krossins 1717 er gjaldfrjáls sími sem er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa á aðstoð að halda vegna kvíða, þunglyndis, depurðar, efnahagsáhyggja, einmanaleika eða jafnvel sjálfsvígshugsana.Hjálparsíminn veitir upplýsingar um samfélagsleg úrræði og þjónustu. Síminn er einnig virkjaður sem upplýsingasími til almennings vegna hamfara og annars neyðarástands innanlands. Síminn er mannaður af sérþjálfuðum starfsmönnum og sjálfboðaliðum. Tugir manna hringja í 1717 á degi hverjum.
Neyðarvarnir eru hluti af verkefnum Rauða krossins og felast einkum í því að starfrækja fjöldahjálparstöðvar og söfnunarsvæði aðstandenda auk þess að veita upplýsingar til fólks á neyðarstundu. Viðbragðshópur deilda á höfuðborgarsvæðinu er skipaður sjálfboðaliðum sem eru á vaktinni allan sólarhringinn. Hópurinn er kallaður út til að sinna verkefnum utan almannavarnarástands, til dæmis vegna húsbruna, bílslysa og annarra slysa. Hlutverk sjálfboðaliðanna er að veita sálrænan stuðning og upplýsingar til þolenda. Hópurinn starfar náið með slökkviliði og lögreglu.
Sálrænn stuðningur er sívaxandi verkefni Rauða krossins, en námskeið eru haldin um allt land og sérþjálfað viðbragðsteymi veitir áfallahjálp á neyðartímum eða þegar þess þykir þörf.
Sjúkrahússverkefni felast meðal annars í bókasafnsþjónustu við sjúklinga og rekstri verslana á sjúkrahúsum.
Skyndihjálparhópar eru mismunandi eftir landshlutum en á flestum stöðum standa þeir vaktina á ýmsum mannamótum og eru til taks ef á þarf að halda. Á landsbyggðinni eru slíkir hópar einnig viðbragðshópar og eru kallaðir út ef stærri slys verða.
Starf með fólki af erlendum uppruna er aðallega af tvennum toga, annars vegar eru innflytjendur aðstoðaðir við aðlögun að íslensku samfélagi, bæði fullorðnir og börn, og hins vegar er flóttamönnum og hælisleitendum veitt margvísleg aðstoð. Rauði kross Íslands er samstarfsaðili Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) hér á landi.
Starf með fólki með geðraskanir er eitt af viðameiri verkefnum Rauða krossins, en félagið kemur að rekstri átta athvarfa fyrir fólk með geðraskanir þar sem fólk getur komið og fengið félagsskap, heitan mat, lesið og málað svo að fátt eitt sé nefnt. Í athvörfunum starfa bæði launaðir starfsmenn og sjálfboðaliðar. Víða um land eru starfræktir sjálfshjálparhópar fyrir fólk með geðraskanir og aðstandendur þeirra.
Ungmennastarfið hefur markhópinn 30 ára og yngri en fólk á öllum aldri starfar innan þess. Verkefnin byggja á grundvallarmarkmiðunum og haft er að leiðarljósi að rjúfa félagslega einangrun. Helstu verkefni eru starf með ungu fólki af erlendum uppruna, alþjóðastarf, unglingastarf hreyfihamlaðra, starf í athvörfum og skyndihjálp.
Vinadeildasamstarf er gagnkvæmt samstarf íslenskrar Rauða kross deildar annars vegar og hins vegar deilda innan Rauða kross landsfélags í öðru landi. . Flestar erlendu vinadeildirnar eru í Gambíu, samstarfslandi Rauða kross Íslands til áratuga.
Rauðakrosshúsið mun bjóða upp á ýmiss úrræði fyrir þá sem eiga erfitt vegna efnahagsþrenginga. Þar verður sálrænn stuðningur í fyrirrúmi en einnig verður hægt að leita ráðgjafar og fá upplýsingar um hvað er í boði. Við leggjum áherslu á samvinnu, stuðning og sjálfboðana vinnu.
Hafðu samband.
|