Um Rauða krossinn
Rauði krossinn er elsta, virtasta og útbreiddasta mannúðarhreyfing í heimi, með starfsemi í 186 löndum. Rauði kross Íslands var stofnaður 10. desember 1924 og fyrsti formaður hans var Sveinn Björnsson, síðar forseti Íslands.
Markmið Rauða krossins eru sjö og eftir þeim fara 97 milljónir félagsmanna og sjálfboðaliða og 300 þúsund starfsmenn hreyfingarinnar um allan heim.
Þú getur tekið þátt í starfi Rauða krossi Íslands með því að reiða af hendi peningaupphæð með greiðslukorti eða með því að gerast félagi eða sjálfboðaliði.
Landsskrifstofa Rauða kross Íslands í Reykjavík hefur það hlutverk að samræma verk 50 deilda hér á landi og taka þátt í starfi Alþjóða Rauða krossins fyrir Íslands hönd.
Rauði kross Íslands hefur gefið út fjölbreytt fræðsluefni og sumt er hægt að sækja á vefnum.
|
|