Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

Von um betra líf

Hjálparstarf Rauða kross Íslands gefur árlega þúsundum barna og fullorðinna, í erfiðum aðstæðum, von um betra líf.

Barn sem missir foreldra sína í helgreipar alnæmis  þarf oft bara örlitla hjálp til að fá tækifæri til að komast til manns. Ungmenni sem hefur þurft að þola ólýsanlegar skelfingar stríðs getur komið sér á strik með því að eiga kost á að læra einhverja iðn. Fjölskylda sem missir heimili sitt í náttúruhamförum  þarf skjól, mat og aðstoð til uppbyggingar.

Hjálp til sjálfshjálpar

Hjá Rauða krossinum felst allt okkar starf í því að styðja heimamenn til að hjálpa á heimavelli. Félög Rauða krossins eða Rauða hálfmánans eru til í 186 löndum, og hvert þessara félaga er með deildir sem byggja á starfi sjálfboðaliða í grasrótinni.

Langflestir skjólstæðingar okkar eru börn og  ungmenni í fátækustu löndum Afríku. Í Malaví styðjum við meðal annars munaðarlaus börn til framfærslu og mennta. Börnin eru ekki tekin úr umhverfi sínu heldur er þeim gefinn kostur á að alast upp í þorpinu sínu. Máltíðin sem þau fá hjá Rauða krossinum er eina máltíð dagsins hjá sumum þeirra.

Í Mósambík njóta fátækir þorpsbúar í sunnanverðu landinu heilsugæslu sem þeir hefðu ekki haft nema vegna aðstoðarinnar frá Íslandi. Yfirsetukonur í hverju þorpi huga að heilbrigði þorpsbúa, aðstoða konur við barnsburð og vara við því að óvarið kynlíf geti verið lífshættulegt vegna alnæmisveirunnar.

Í Sierra Leone styðjum við ungmenni til mennta eftir þátttöku í borgarastyrjöldinni sem var í landinu. Strákarnir voru margir barnahermenn og stúlkurnar teknar sem kynlífsambáttir. Eitt ár í endurmenntunarstöðvum Rauða krossins eru það tækifæri sem þau fá í lífinu.

Í Palestínu sýna rannsóknir að börn á aldrinum 10 – 12 ára sem fá sálrænan stuðning, sem Rauði kross Íslands styður, eru bæði jákvæðari, glaðværari og reiðubúnari að treysta öðrum heldur en þau voru áður.

Þegar á reynir

Þegar neyðarástand skapast fer Rauði krossinn af stað. Líkja má Rauða kross hreyfingunni við alþjóðlegt tryggingarkerfi, sem fer í gang þegar allt annað þrýtur. Íslendingar nutu aðstoðar Alþjóðahreyfingar Rauða krossins í Vestmannaeyjagosinu, sem brást veglega við þeirri hjálparþörf sem þá myndaðist.

Rauði kross Íslands leggur metnað sinn í að bregðast hratt við neyð, hvar sem er í heiminum. Sjálfboðaliðar í hverju landi hafa fengið þjálfun til að bregðast við skyndilegri neyð. Ef neyðin er svo stór að ekki dugar til það sem hægt er að útvega heima fyrir, þá kemur alþjóðahreyfingin til hjálpar.

Rúmlega 100 manns eru á svokallaðri Veraldarvakt Rauða kross Íslands. Sendifulltrúar eru reiðubúnir að stökkva til þegar kallið berst, oft með nánast engum fyrirvara. Á hverju ári sendir Rauði kross Íslands milli 15 og 30 sendifulltrúa til hjálparstarfa erlendis.