Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  

Mannúðarstarf innanlands

Innan Rauða kross Íslands starfa 50 deildir sem sinna margvíslegu mannúðarstarfi í þágu þeirra sem standa höllum fæti í íslensku samfélagi. Um 2500 sjálfboðaliðar bera starfið uppi en þeir starfa í anda grundvallarmarkmiða Rauða kross hreyfingarinnar um mannúð, hlutleysi og óhlutdrægni.

Rauði krossinn gegnir mikilvægu hlutverki í skipulagi almannavarna og veitir neyðaraðstoð innanlands sem utan.

Félagið er leiðandi í fræðslu um skyndihjálp og sálrænan stuðning.

Rauðakrosshúsið er miðstöð fyrir fólk sem orðið hefur fyrir áföllum vegna efnahagsþrenginganna. Starfið er byggt á áralangri reynslu félagsins af viðbrögðum í neyð. Þar geta einstaklingar og fjölskyldur sótt sér sálrænan stuðning og ráðgjöf um þau úrræði sem bjóðast í samfélaginu. Einnig er í boði ýmis konar fræðsla og félagsstarf sem er opið öllum.

Hjálparsími Rauða krossins 1717 er gjaldfrjáls og opinn allan sólarhringinn. Allir geta hringt og leitað aðstoðar án þess að segja til nafns. Hjálparsíminn gegnir einnig mikilvægu hlutverki sem upplýsinganúmer til almennings vegna hamfara eða neyðarástands innanlands.

Heimsóknavinir Rauða krossins heimsækja mörg hundruð einstaklinga.

Rauði krossinn stendur fyrir fatasöfnun á öllu landinu sem nýtist til hjálparstarfs bæði innanlands og utan.

Félagið vinnur með börnum og ungmennum og finnur ungu fólki vettvang fyrir hugsjónastarf innan Rauða krossins.

Hundruð gesta koma á hverjum degi í athvörf/geðræktarmiðstöðvar Rauða krossins sem eru átta staðsettar víða um landið.

Rauði krossinn aðstoðarflóttafólk og hælisleitendur hér á landi og hefur gert í áratugi.

Félagið vinnur að málefnum innflytjenda.

Konukot er athvarf Rauða krossins fyrir heimilislausar konur á höfuðborgarsvæðinu.

Sjúkrabifreiðar um allt land eru reknar af Rauða krossinum.

Rauði krossinn er helsti bakhjarl Fjölsmiðjunnar í Kópavogi og á Akureyri þar sem starfrækt eru verkþjálfunar- og framleiðslusetur fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára sem hætt hefur námi og ekki fótað sig á vinnumarkaði.